Guðbjörn Guðbjörnsson stjórnsýslufræðingur og óperusöngvari ræðir í viðtali við Pétur Gunnlaugsson um það helsta sem var í fréttum þessarar viku, barnabólusetningar, MeToo ásakanir og fleira.
Magnús Þór ræðir við Vigdísi Hauksdóttur borgarfulltrúa og fyrrum formann fjárlaganefndar Alþingis og Guðmund Andra Thorsson fyrrv. alþingismann Samfylkingarinnar.
Inga Sæland formaður Flokks fólksins ræðir í viðtali við Arnþrúði Karlsdóttur um það helsta sem var í fréttum þessarar viku, heilbrigðismálin, blóðmerarmálið og margt fleira.
Gústaf Skúlason fréttamaður í Stokkhólmi fjallar um það sem efst var á baugi í umræðunni í vikunni og ræðir meðal annars um morð á þekktum sænskum rappara en morðið er talið tengjast stríði milli glæpagengja.
Björn Leví Gunnarsson og Inga Sæland ræða það sem efst var á baugi í fréttum þessarar viku, Kosningaklúðrið í norðvesturkjördæmi, sóttvarnaaðgerðir og fleira.