#36- Þarmaflóran með  Birnu G. Ásbjörns

#36- Þarmaflóran með Birnu G. Ásbjörns

Author: Ragga Nagli July 5, 2020 Duration: 1:01:47
Allir sjúkdómar byrja í þörmunum sagði Hippókrates. Þessi þáttur er algjör bomba. Allt sem þú þarft að vita um heilbrigða þarmaflóru. Hver eru einkenni óheilbrigðrar þarmaflóru. Hvaða matvæli eru góð fyrir okkur og hvað er slæmt fyrir þarmaflóruna. Hvaða bætiefni eru góð fyrir þarmaflóruna og hvað er peningasóun. Hvað er lekir þarmaveggir og hvernig lögum við það Í þessum þætti tala ég við Birnu G. Ásbjörnsdóttur sem svarar öllum þessum spurningum um mikilvægasta líffæri líkamans og hefur verið svo mikið rannsakað síðustu árin. Birna er er með meistaragráðu í næringarlæknisfræði frá Surreyháskóla og lokið námi í gagnreyndum heilbrigðisvísindum frá Oxfordháskóla. Birna veitir ráðgjöf og fræðslu til einstaklinga, fagaðila og fyrirtækja hérlendis og erlendis. Birna stundar nú doktorsnám við læknadeild og matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands.  Birna heldur úti heimasíðunni Jorth.is þar sem pistlarnir eru ætlaðir til fróðleiks og þekkingarauka fyrir þá sem vilja taka upplýstar ákvarðanir varðandi heilsu. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi @nowiceland Njótið. Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Ég spjalla sjálf eða fæ til mín góða gesti sem eru sérfræðingar á sínu sviði og plokka úr þeim viskuna fyrir okkur sótsvartan almúgann til að nýta okkur í daglegu lífi. www.ragganagli.com inniheldur greinar um heilbrigt samband við mat, æfingar og líkamann ragganagli79@gmail.com ef þig vantar sálfræðiaðstoð eða sálfræðilega mataræðisráðgjöf Facebook/RaggaNagli Stefið er eftir Arnar Boga Ómarsson, fylgið honum á Spotify undir listamannsnafninu ‘Boji’ Lógóið hannaði Andrea Jónsdóttir hjá 29 línur. www.29linur.com @29linur Afsláttarkóðar: Veganbúðin: ragganagli = 10% www.nowfoods.is: ragganagli20 Hverslun.is ragganagli20 = 20% www.goodgoodbrand.net: ragganagli20

Ragga Nagli hefur tekið sér það verkefni að skoða heilsuna frá mörgum sjónarhornum í Heilsuvarpid. Hér er ekki um einhvern stífur kennslustund að ræða, heldur raunveruleg samræður þar sem líkamleg og andleg heilsa, hreyfing og næring eru könnuð með forvitni og hreinskilni. Í þessum podcast finnur þú ekki bara kenningar, heldur raunverulegar umræður og innsýn sem hægt er að tileinka sér í daglegu lífi. Ragga fær ýmsa gesti til sín til að ræða þau þætti sem saman mynda heildstætt heilsufar, allt frá grunnhreyfingu og réttri næringu til andlegrar þols og daglegra vana. Það sem skilur eftir minnst er hughreystandi og jákvæð tilfinning sem hlýst af að hlusta á þessa umræður. Þú munð heyra um mismunandi aðferðir og sjónarmið, en einnig hagnýt ráð og reynslusögur sem geta verið uppörvandi fyrir þá sem vilja gera jákvæðar breytingar. Að hlusta á þennan podcast er eins og að eiga spjall við góðan vini sem hefur áhuga á því að þú líður vel; það er náttúrulegt, uppbyggilegt og oft mjög leiðinlegt. Þetta er staðurinn þar sem heilsufarsáhugunni er komið á flug með heiðarlegum og tengslamyndandi umræðum.
Author: Language: Icelandic Episodes: 100

Heilsuvarpid
Podcast Episodes
#116 Liðleika Lilja - Liðleiki, hreyfanleiki, lyftingar [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 1:00:21
Lilja Sigurgeirsdóttir eða Liðleika Lilja er ÍAK einkaþjálfari sem sérhæfir sig í liðleika og hreyfanleika. Hún heldur úti námskeiðunum Flex Fit, Stirðir strákar, lyftingar fyrir konur, liðleiki fyrir golfara og margt fl…
#115  Svefn -Verkfæri fyrir dúndur góðan svefn [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 22:04
Verkfæri fyrir góða svefnrútínu til að stuðla að dúndur góðum svefni, hvers vegna við vöknum oft kl 2-3 á nóttunni og dettum í ofhugsanir, og hvað við getum gert til að róa líkamann niður og sofna aftur. Heilsuvarpið er…
#112 Næring fyrir + eftir æfingu [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 22:33
Þetta sólóvarp fjallar um hvers vegna við þurfum að næra okkur vel fyrir og eftir æfingu og hvað sé best að borða. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó. @nowiceland @netto.is
#111 Breytingaskeiðið mitt [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 31:54
Þessi þáttur er sólókast þar sem ég tala um vegferð mína á breytingaskeiðinu, hvað ég þurfti að gera í heilbrigðiskerfinu og hverju ég breytti varðandi lífsstíl, bætiefni, mataræði og æfingar til að fara í gegnum þetta s…
#110 Ég alla leið - sjálfsrækt [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 1:02:05
Gestir Heilsuvarpsins eru Helga Fríður Garðarsdóttir félagsráðgjafi, Inga Guðlaug Helgadóttir sálfræðingur, Margrét K. Pétursdóttir jógakennari standa að baki Ég alla leið, sem er sjálfsræktardagbóka helguð sjálfseflingu…
#109 Atli Steinn Guðmundsson - Að lyfta lóðum alla ævi [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 54:00
Atli Steinn Guðmundsson blaðamaður á Morgunblaðinu og lyftingakappi per exelans er gestur Heilsuvarpsins. Atli er fimmtugur og hefur lyft síðan hann var 14 ára gamall. Við tölum um hvað stuðlar að langlífi í lyftingum nú…