#42 - Biggi þjálfari - Spurt Og Svarað

#42 - Biggi þjálfari - Spurt Og Svarað

Author: Ragga Nagli October 24, 2020 Duration: 1:02:19
Biggi þjálfari kom í heimsókn í Heilsuvarpið til að svara spurningum sem fólk sendi á instagram og við völdum fimm úr bunkanum sem kom inn í gegnum skilaboðin. Fáir eru jafn hoknir af reynslu og Biggi þegar kemur að þjálfun, því hann hefur yfir 20 ára reynslu og ekki þjálfað þúsundir heldur tugþúsundir. Hann stofnaði og rak Boot Camp stöðvarnar um árabil, en þar áður sleit hann barnsskónum í hinu legendary GYM 80 innan um kanónur eins og Jón Pál, Hjalta Úrsus, Magnús Ver og Jón bónda. Frábær þáttur með einstökum manni. Vonandi getið þið bætt einhverju við vopnabúrið ykkar í heimaæfingum og haldið áfram að taka á því utandyra, í ræktinni, heima í stofu, í bílskúrnum, úti í garði, úti á túni eða hvar sem er. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi sem flytja inn NOW vörurnar sem eru hágæða hrein bætiefni sem stuðla að hámarks árangri án óæskilegra aukefna. www.nowfoods.is Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Ég spjalla sjálf eða fæ til mín góða gesti sem eru sérfræðingar á sínu sviði og plokka úr þeim viskuna fyrir okkur sótsvartan almúgann til að nýta okkur í daglegu lífi. www.ragganagli.com inniheldur greinar um heilbrigt samband við mat, æfingar og líkamann ragganagli79@gmail.com ef þig vantar sálfræðiaðstoð eða sálfræðilega mataræðisráðgjöf Facebook/RaggaNagli Stefið er eftir Arnar Boga Ómarsson, fylgið honum á Spotify undir listamannsnafninu ‘Boji’ Lógóið hannaði Andrea Jónsdóttir hjá 29 línur. www.29linur.com @29linur

Ragga Nagli hefur tekið sér það verkefni að skoða heilsuna frá mörgum sjónarhornum í Heilsuvarpid. Hér er ekki um einhvern stífur kennslustund að ræða, heldur raunveruleg samræður þar sem líkamleg og andleg heilsa, hreyfing og næring eru könnuð með forvitni og hreinskilni. Í þessum podcast finnur þú ekki bara kenningar, heldur raunverulegar umræður og innsýn sem hægt er að tileinka sér í daglegu lífi. Ragga fær ýmsa gesti til sín til að ræða þau þætti sem saman mynda heildstætt heilsufar, allt frá grunnhreyfingu og réttri næringu til andlegrar þols og daglegra vana. Það sem skilur eftir minnst er hughreystandi og jákvæð tilfinning sem hlýst af að hlusta á þessa umræður. Þú munð heyra um mismunandi aðferðir og sjónarmið, en einnig hagnýt ráð og reynslusögur sem geta verið uppörvandi fyrir þá sem vilja gera jákvæðar breytingar. Að hlusta á þennan podcast er eins og að eiga spjall við góðan vini sem hefur áhuga á því að þú líður vel; það er náttúrulegt, uppbyggilegt og oft mjög leiðinlegt. Þetta er staðurinn þar sem heilsufarsáhugunni er komið á flug með heiðarlegum og tengslamyndandi umræðum.
Author: Language: Icelandic Episodes: 100

Heilsuvarpid
Podcast Episodes
#76 Halldóra og Viðar Kvennastyrkur + Kvennakraftur [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 1:15:03
Halldóra Anna Hagalín og Viðar Bjarnason eigendur Kvennastyrks í Hafnarfirði sem er líkamsræktarstöð eingöngu fyrir konur þar sem áherslan er á að hver og ein hreyfi sig útfrá eigin getu og þjálfun aðlöguð að hverri konu…
#75 Ingi Torfi Macros og mataræði [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 1:03:08
Í þessum þætti er ég að tala við Inga Torfa Sverrisson hjá ITS macros en þau hafa hjálpað þúsundum að ná árangri með að telja orkuefni og læra gott máltíðamynstur. Við fórum um víðan völl í öllu sem viðkemur mataræði, ma…
#74 Jónas Tryggvi Betra Box sambönd + samskipti [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 1:04:03
Jónas Tryggvi Stefánsson frá Betra Box, er áhugamaður um samskipti, sambönd, og meðvirkni. Hann vill ekki að við festum okkur í ákveðnu boxi. Í þættinum töluðum við um allskonar tengt samböndum, kynlífi, heilbrigð samski…
#73 Hlynur Kristinn Það er Von [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 1:00:56
Hlynur Kristinn Rúnarsson er stofnandi samtakann Það er von Markmið þeirra er að vinna gegn fordómum, skömm og vekja von hjá þeim sem glíma við fíknisjúkdóma og gefa annað tækifæri í lífinu. Hlynur á sjálfur ótrúlega sög…
#72 Halldóra Skúladóttir - Breytingaskeiðið [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 57:24
Gestur þáttarins er Halldóra SKúladóttir hjá Kvennaráð.is. Hún er sprenglærð í breytingaskeiði kvenna, sjúkraliðamenntun og dáleiðari. Halldóra er hafsjór af fróðleik um breytingaskeiðið, og markmið hennar er að fræða, u…
#71 Sólveig Sigurðardóttir Crossfitstjarna [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 1:15:09
Í þessum þætti tala ég við Sólveigu Sigurðardóttur, Crossfitstjörnu, en hennar frægðar Sól reis hratt síðasta ár þegar hún stóð sig stórkostlega í undanúrslitunum í London og tryggði sig inn á Crossfitleikana í einstakli…
#70 Daníel Gunnarsson - frá magaermi í vaxtarrækt [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 1:02:36
Daníel Gunnarsson fór í magaermi í maí 2021. Í nóvember 2022 stóð hann helskafinn á sviði að keppa í vaxtarrækt og lét þar gamlan draum rætast. Draumur sem hann hélt að yrði alltaf bara óraunhæf óskhyggja. Ekki nóg með a…
#69 Sara Sigmunds Crossfit drottning [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 1:08:23
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir, Crossfit drottning, sálfræðinemi, verðandi einkaflugmaður. Sara er hlý, kærleiksrík, fyndin og einlæg. Hún opnar sig um hvernig hún komst andlega í gegnum meiðslin á hnénu, hversu mikilvæg…
#68 Sveinn Gunnar Björnsson kírópraktor [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 1:02:32
Sveinn Gunnar Björnsson eða Svenni Kíró er kírópraktor hjá Kíró Lindum. Hann lærði í Atlanta Georgia, og glímdi sjálfur við bakmeiðsli ungur að árum. Svenni er gangandi fróðleiksmoli um allt sem viðkemur líkamsstöðu og b…
#67 Erlendur Rafnkell Crossfit Fenrir Elite [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 1:35:05
Í þessum þætti tala ég við Ella eiganda Fenrir Elite á Höfn í Hornafirði. Elli á magnaða sögu þrátt fyrir ungan aldur. Hann hefur glímt við þunglyndi kvíða, og fíkn en vann sig útúr því og stofnað Crossfit stöð sem fagna…