#42 - Biggi þjálfari - Spurt Og Svarað

#42 - Biggi þjálfari - Spurt Og Svarað

Author: Ragga Nagli October 24, 2020 Duration: 1:02:19
Biggi þjálfari kom í heimsókn í Heilsuvarpið til að svara spurningum sem fólk sendi á instagram og við völdum fimm úr bunkanum sem kom inn í gegnum skilaboðin. Fáir eru jafn hoknir af reynslu og Biggi þegar kemur að þjálfun, því hann hefur yfir 20 ára reynslu og ekki þjálfað þúsundir heldur tugþúsundir. Hann stofnaði og rak Boot Camp stöðvarnar um árabil, en þar áður sleit hann barnsskónum í hinu legendary GYM 80 innan um kanónur eins og Jón Pál, Hjalta Úrsus, Magnús Ver og Jón bónda. Frábær þáttur með einstökum manni. Vonandi getið þið bætt einhverju við vopnabúrið ykkar í heimaæfingum og haldið áfram að taka á því utandyra, í ræktinni, heima í stofu, í bílskúrnum, úti í garði, úti á túni eða hvar sem er. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi sem flytja inn NOW vörurnar sem eru hágæða hrein bætiefni sem stuðla að hámarks árangri án óæskilegra aukefna. www.nowfoods.is Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Ég spjalla sjálf eða fæ til mín góða gesti sem eru sérfræðingar á sínu sviði og plokka úr þeim viskuna fyrir okkur sótsvartan almúgann til að nýta okkur í daglegu lífi. www.ragganagli.com inniheldur greinar um heilbrigt samband við mat, æfingar og líkamann ragganagli79@gmail.com ef þig vantar sálfræðiaðstoð eða sálfræðilega mataræðisráðgjöf Facebook/RaggaNagli Stefið er eftir Arnar Boga Ómarsson, fylgið honum á Spotify undir listamannsnafninu ‘Boji’ Lógóið hannaði Andrea Jónsdóttir hjá 29 línur. www.29linur.com @29linur

Ragga Nagli hefur tekið sér það verkefni að skoða heilsuna frá mörgum sjónarhornum í Heilsuvarpid. Hér er ekki um einhvern stífur kennslustund að ræða, heldur raunveruleg samræður þar sem líkamleg og andleg heilsa, hreyfing og næring eru könnuð með forvitni og hreinskilni. Í þessum podcast finnur þú ekki bara kenningar, heldur raunverulegar umræður og innsýn sem hægt er að tileinka sér í daglegu lífi. Ragga fær ýmsa gesti til sín til að ræða þau þætti sem saman mynda heildstætt heilsufar, allt frá grunnhreyfingu og réttri næringu til andlegrar þols og daglegra vana. Það sem skilur eftir minnst er hughreystandi og jákvæð tilfinning sem hlýst af að hlusta á þessa umræður. Þú munð heyra um mismunandi aðferðir og sjónarmið, en einnig hagnýt ráð og reynslusögur sem geta verið uppörvandi fyrir þá sem vilja gera jákvæðar breytingar. Að hlusta á þennan podcast er eins og að eiga spjall við góðan vini sem hefur áhuga á því að þú líður vel; það er náttúrulegt, uppbyggilegt og oft mjög leiðinlegt. Þetta er staðurinn þar sem heilsufarsáhugunni er komið á flug með heiðarlegum og tengslamyndandi umræðum.
Author: Language: Icelandic Episodes: 100

Heilsuvarpid
Podcast Episodes
#48 Birna Varðar - Átraskanir og hlutfallslegur orkuskortur [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 1:02:22
Birna er með BS gráðu í næringarfræði frá HÍ og meistargráðu í þjálffræðivísindum með íþróttanæringarfræði sem sérsvið frá Maastricht háskóla í Hollandi. Hún stundar nú doktorsnám í íþrótta-og heilsufræði við HÍ. Í þessu…
#46 Jól Í Núvitund [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 30:48
Við eyðum fleiri klukkustundum, jafnvel sólarhringum og dögum í að hugsa um mat. Versla í matinn. Elda matinn. Skera. Preppa. Undirbúa. Leggja á borð. Ganga frá eftir mat. En sjálf athöfnin að borða. Athöfnin sem við öll…
#46 Árni sálfræðingur -  COVID Kvíði [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 1:06:02
Í þessum þætti tölum við Árni sálfræðingur um COVID kvíða. Margir eru að glíma við óvissu, hræðslu við veiruna, kvíða yfir að smitast, ótta við smitskömm, einmanaleika, fjárhagslegt óöryggi og margt fleira tengt þessum h…
#45 Hvernig gerirðu hollar máltíðir gúrmetisgómsæti? [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 32:35
Hvernig gerirðu heilsusamlegar máltíðir að jólaballi í munninum á þér? Hvernig býrðu til langvarandi heilbrigt samband við mat með að njóta hverrar einustu máltíðar? Hvernig hækkarðu fullnægingarfaktorinn í daglegu máltí…
#44 Árni sálfræðingur - Impostor Syndrome [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 1:00:49
Í þessum þætti tölum við Árni sálfræðingur um loddaralíðan eða Impostor syndrome sem lýsir sér í að við erum haldin viðvarandi hræðslu um að það komist upp um okkur sem loddara í starfi og daglegu lífi, því við séum að b…
#43 Helgi Ómars - Meðvirkni í samböndum [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 54:02
Í þessum þætti tölum við Helgi Ómars um hvernig meðvirkni kemur fram í samböndum og þróast ómeðvitað í samskiptamynstri milli tveggja aðila. Við tölum um hvernig Helgi er smám saman að vinna sig útúr sinni meðvirkni og s…
#41 Bjöddi þjálfari- Heimaæfingar [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 1:03:52
Nú þegar ræktin er lokuð aftur í COVID vantar marga innblástur og hugmyndir fyrir heimaæfingar eða útiæfingar. Björn Þór Sigurbjörnsson þjálfari í World Class miðlar hér af reynslu og þekkingu til að halda mótivasjóninni…
#40 - Kvíði með Steinunni Önnu sálfræðingi [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 1:14:04
Steinunn Anna er sálfræðingur hjá Litlu Kvíðameðferðarstöðinni og kennari í Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur sérhæft sig í kvíða hjá börnum og fullorðnum sem og áráttu og þráhyggju. Við tölum um kvíða…
Grunnbrennslan #2 - hvernig fær maður hærri grunnbrennslu? [not-audio_url] [/not-audio_url]

Duration: 56:54
Hvernig hröðum við á grunnbrennslunni? Hvað veldur hægri grunnbrennslu? Hvaða hlutverki gegna hormónar í grunnbrennslunni? Af hverju er mikilvægt að borða meira? Hvernig bökkum við útúr því að vera í megrun yfir í að bor…